::: Voldumvej 80

sunnudagur, janúar 12, 2003  

::: Áfram Ísland!
Fjölskyldan fór að horfa á íslenska landsliðið í handbolta etja kappi við Egypta í Valby-Hallen í dag. Íslendingar völtuðu yfir andstæðinga í seinni hálfleik, eftir jafnan fyrri hálfleik, og unnu sannfærandi 35:25. Annars var leikurinn eins konar upphitunarleikur því áhorfendur voru komnir eingöngu til að sjá Dani spila á móti Pólverjum en þessar fjórar þjóðir tóku þátt í æfingamóti hér í Köben. Íslendingar stóðu sig alveg þokkalega eftir útreið gegn Dönum í gær í Helsinge. Ég er bara feginn að ég fór ekki á þann leik. Sá hann í sjónvarpinu og hætti að horfa í lokin þegar annars þokkalegir lýsendur leiksins fóru yfirum í þjóðernisstolti og fullvissu að þeir væru að horfa á væntanlega heimsmeistara. Þetta fór svolítið í taugarnar á manni, þeim þótti auðvitað bara eðlilegt að vinna Ísland, en gleymdu reyndar hvort liðið hefur berið betra á heimsmælikvarða síðustu 10-15 ár allavega fram að hinum afdrifaríka bronsleik á EM á síðasta ári.

Við hlökkum til að fylgjast með Íslandi á HM í Portúgal. Maður er nú hæfilega vongóður, ekkert meira. Fyrir mitt leyti mun ég hins vegar ekki veita Dönum stuðning á mótinu. Ég kann bara ekki við það hvað þeir eru stundum góðir með sig. Þetta var allt annað þegar maður fylgdist með danska kvennalandsliðinu í desember sl. Þær voru með skemmtilegt lið sem auðvelt var að halda með. Hafi danska karlaliðið einhvern tímann átt von um að fá stuðning minn (eftir að Ísland félli hugsanlega úr leik), varð það að engu á landsleiknum fyrr í dag. Þá kom í ljós að meirihluti danskra áhorfenda virtist fremur styðja Egypta en Íslendinga. Enda eru Danir og Egyptar frændþjóðir miklar. :-)

Áfram Ísland á HM!

posted by Thormundur | 20:17

miðvikudagur, janúar 08, 2003  

::: Allir í heimsókn!
Nú hafa menn ekki lengur afsökun fyrir því að koma ekki í heimsókn til okkar hér í Köben. Á morgun, 9. janúar, verður hægt að bóka miða hjá Iceland Express, fyrsta íslenska lággjaldaflugfélaginu. Hægt verður að fljúga til okkar alla daga vikunnar, allan ársins hring og heim aftur fyrir vel innan við 15 þúsund krónur - íslenskar. Reyndar flýgur félagið líka til London, en við erum ekki þar. En það sem meira er. Það verður raunverulega mikið af fargjöldum í boði á þessu lágu verði. Lágt verð er ekki bara auglýsingabrella, lágt verð er útgangspunktur. Loks þarf ekki að hafa áhyggjur af "sunnudagareglunni" alræmdu, hægt verður að fljúga út hvaða dag sem er og koma heim hvenær sem hentar.

Við vitum að margir hafa þegar hugsað sér til hreyfings af þessu tilefni. Elísabet, systir Sóleyjar, kemur í mars og nokkrir fleiri hafa orðað möguleikann að kíkja í heimsókn. Við letjum engan til þess. Menn þurfa líka að fara að bóka gistingu. Voldumvej 80 tekur ekki endalaust við. :-)

posted by Thormundur | 22:44

þriðjudagur, janúar 07, 2003  

::: Hún á afmæli í dag!
Mamma á afmæli í dag. Við sendum innilegar hamingjuóskir frá Danmörku! Svo hringjum við seinna í dag þegar sumir eru komnir úr leikskólunum sínum.

posted by Thormundur | 13:32
Myndir
Gestabók
Bloggarar
Barnavefir
Greinasafn